
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari
handbók er samþykkt til notkunar í (E)GSM
850, 900, 1800, 1900 og UMTS 900, 1900,
2100 símkerfi. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum
lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.
höfundarrétt.
Höfundarréttarvörn getur hindrað afritun,
breytingu eða flutning sumra mynda,
tónlistar og annars efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir
tenginga. Líkt og gildir um tölvur hafa
vírusar og annað skaðlegt efni áhrif á
tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun
skilaboða, tengibeiðna, við vefskoðun og
við niðurhal. Aðeins skal setja upp og nota
þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum
aðilum sem bjóða upp á nægjanlega vörn
gegn skaðlegum hugbúnaði líkt og
Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað
sem hefur staðist Java Verified™ prófun.
Þú ættir að íhuga að setja
vírusvarnarhugbúnað og annan
öryggishugbúnað upp í tækinu og tölvum
sem tengjast við það.
Öryggi
5
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins
eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri
en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif
á afkastagetu og virkni tækisins, eða
valdið því að það virki ekki.
Tækið getur innihaldið bókamerki og
tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er
hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í
tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki
Nokia og Nokia hvorki hvetur til né tekur
ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja slíkar
síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
Viðvörun:
Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á
tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar
notkun þráðlausra tækja getur valdið
truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti
Microsoft Word, PowerPoint og Excel
(Microsoft Office 2000, XP og 2003). Ekki er
hægt að skoða eða breyta öllum
skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda
skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem
geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa
notendahandbók þess vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.
Myndir kunna að líta öðruvísi út í þessum
bæklingi en á skjá tækisins.