
Úrræðaleit
Á www.nokia.com/support finnurðu svör
við algengum spurningum um tækið.
Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir
læsingar-, PIN- eða PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345.
Hafðu samband við söluaðilann ef þú
gleymir læsingarnúmerinu. Ef PIN- eða
PUK-númer gleymist eða ef ekki hefur
verið tekið við slíku númeri skal hafa
samband við þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð fást hjá
aðgangsstaðaþjónustu, t.d.
netþjónustuveitu eða símafyrirtæki.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem
er frosið, þ.e. svarar ekki?
Svar: Veldu
Valkostir
>
Sýna opin forrit
og notaðu valmyndartakkann til að fara
að forritinu. Haltu valmyndartakkanum
inni til að opna forritið og veldu
Valkostir
>
Hætta
.
Spurning: Af hverju virðast myndir
vera óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Spurning: Hvers vegna sjást daufir,
upplitaðir eða skærir punktar á
skjánum í hvert skipti sem ég kveiki á
tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð
af skjám. Á sumum skjám geta verið dílar
eða punktar sem lýsa annaðhvort stöðugt
eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla
heldur eðlilegan hlut.
Spurning: Hvers vegna getur Nokia-
tækið mitt ekki komið á GPS-tengingu?
Svar: Það getur tekið allt frá fáeinum
sekúndum upp í nokkrar mínútur að koma
á GPS-tengingu. Það getur tekið lengri
tíma en ella að koma á GPS-tengingu í bíl.
Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná
betra merki. Sértu úti skaltu fara á opnara
svæði. Gættu þess að höndin sé ekki yfir
GPS-loftneti tækisins. Slæm veðurskilyrði
geta einnig haft áhrif á sendistyrk. Sum
farartæki eru með skyggðum rúðum og
ekki er víst að gervihnattamerki berist í
gegnum þær.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki
vinar míns þegar ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu
samhæf, að kveikt sé á Bluetooth og tækin
séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga um
að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé
ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki
séu veggir eða aðrar hindranir á milli
þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið
Bluetooth-tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt
getur þú slitið tengingunni í hinu tækinu
eða slökkt á Bluetooth-tengingunni í
tækinu þínu. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Úrræðaleit 109
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð
aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet
þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn
noti falinn SSID-kóða. Þú getur aðeins
fengið aðgang að netkerfum sem nota
falinn SSID-kóða ef þú veist kóðann og
hefur búið til internetaðgangsstað fyrir
þráðlausa staðarnetið í Nokia-tækinu
þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu
staðarneti í Nokia-tækinu mínu?
Svar: Tenging við þráðlausa staðarnetið
rofnar þegar þú ert ekki tengdur, ert ekki
að reyna að tengjast við annan
aðgangsstað eða að leita að tiltæku
netkerfi. Til að draga enn frekar úr
rafhlöðueyðslu er hægt að stilla Nokia-
tækið þannig að það leiti ekki eða leiti
sjaldnar að tiltækum netkerfum í
bakgrunni. Það slokknar á þráðlausa
staðarnetinu milli þess sem leit fer fram í
bakgrunni.
Gera skal eftirfarandi til að breyta
stillingum bakgrunnsleitar:
1 Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Þráðl. staðarnet
.
2 Til að lengja tímann sem líður á milli
leitar skaltu stilla tímann í Leit að
símkerfum. Til að stöðva leit í
bakgrunni velurðu
Sýna vísi
staðarneta
>
Aldrei
.
3 Breytingarnar eru vistaðar með því að
velja
Til baka
.
Þegar
Sýna vísi staðarneta
er stillt á
Aldrei
birtist táknið fyrir tiltækt
þráðlaust staðarnet ekki á
heimaskjánum. Þú getur þó leitað
handvirkt að tiltækum þráðlausum
staðarnetum og tengst þeim eins og
vanalega.
Spurning: Hvað geri ég ef minnið er
fullt?
Svar: Eyddu efni úr minni tækisins. Ef
Ekki
er nægjanlegt minni fyrir aðgerð.
Eyddu fyrst einhverjum gögnum.
eða
Lítið minni er eftir. Eyddu einhverjum
gögnum úr minni símans.
birtist á
skjánum þegar þú eyðir mörgum atriðum
í einu skaltu eyða einu atriði í einu og
byrja á þeim minnstu.
Spurning: Af hverju get ég ekki valið
tengilið fyrir skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki
símanúmer, heimilisfang né
tölvupóstfang. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og viðeigandi tengilið, og
breyttu tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Hvernig get ég lokað
gagnatengingu sem tækið kemur
alltaf á aftur?
Svar: Tækið gæti verið að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá
skilaboðastöðinni. Til að hindra tækið í að
koma á gagnatengingu velurðu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarskilaboð
>
Móttaka margmiðlunar
. Veldu
Handvirkt val
til að skilaboðamiðstöðin
visti skilaboð sem verða sótt síðar eða
Óvirk
til að hunsa öll
margmiðlunarskilaboð sem berast. Ef þú
velur
Handvirkt val
mun berast
tilkynning þegar ný skilaboð bíða þín á
110 Úrræðaleit
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

skilaboðastöðinni. Ef þú velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á tengingu við
símkerfið vegna margmiðlunarskilaboða.
Til að láta tækið aðeins nota
pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit
eða aðgerð sem þarfnast hennar ýtirðu á
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Stjórnandastill.
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
Ef það kemur ekki að gagni skaltu slökkva
á tækinu og kveikja síðan á því aftur.
Spurning: Get ég notað Nokia-tækið
sem faxmótald með samhæfri tölvu?
Svar: Þú getur ekki notað tækið sem
faxmótald. Með því að nota
símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú
hins vegar beint mótteknum
símbréfssendingum í faxnúmer.
Spurning: Hvernig á að stilla skjáinn?
Svar: Skjárinn er stilltur hjá
framleiðandanum. Ef nauðsynlegt er að
endurstilla skjáinn velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Snertiskjár
>
Kvörðun snertiskjás
. Farðu eftir
leiðbeiningunum.