
Hjálpartexti tækisins
Í tækinu eru leiðbeiningar um hvernig
nota eigi forritin sem fylgja því.
Til að opna hjálpartexta í aðalvalmyndinni
velurðu
Valmynd
>
Forrit
>
Hjálp
og
forritið sem þú vilt fá leiðbeiningar um.
Þegar forrit er opið skaltu velja
Valkostir
>
Hjálp
til að skoða
viðkomandi hjálpartexta.
Til að breyta stærð hjálpartextans á
meðan þú ert að lesa leiðbeiningarnar
velurðu
Valkostir
>
Minnka leturstærð
eða
Auka leturstærð
.
Í lok hvers hjálpartexta eru tenglar að
svipuðu efni.
Ef þú velur undirstrikað orð birtist stutt
útskýring.
Hjálpartextar nota eftirfarandi vísa:
Tengill að tengdu efni.
Tengill að forritinu sem fjallað er
um.
Þegar þú lest fyrirmælin geturðu skipt á
milli hjálpartexta og forrits sem er opið í
bakgrunni með því að velja
Valkostir
>
Sýna opin forrit
og viðeigandi forrit.