
Stillingar
Í tækinu eru stillingar fyrir MMS, GPRS,
straumspilun og internet yfirleitt valdar
sjálfkrafa samkvæmt upplýsingum frá
þjónustuveitunni. Verið getur að
þjónustuveitan hafi þegar sett upp
stillingarnar í tækinu, en einnig er hægt
að fá þær sendar eða biðja um þær í
sérstökum textaskilaboðum.
Hægt er að breyta almennum stillingum
tækisins, svo sem tungumáli, biðstöðu,
skjástillingum og læsingu á takkaborði.