
Um hugbúnaðaruppfærslur
Hugbúnaðaruppfærslur geta innihaldið
nýjar aðgerðir og betri virkni sem ekki var
til staðar þegar tækið var keypt. Uppfærsla
á hugbúnaði getur einnig bætt afköst
tækisins.
Til að fá tilkynningar þegar nýr
hugbúnaður er í boði fyrir tækið skaltu
skrá þig á My Nokia og gerast áskrifandi
að tilkynningum fyrir textaskilaboð eða
tölvupóst. Frekari upplýsingar er að finna
á www.nokia.com/mynokia.
8
Hjálp
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til
að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið
endurræst.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum
getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi
næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið
áður en uppfærslan er ræst.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða
forrit tækisins er ekki víst að
leiðbeiningarnar um uppfærðu forritin í
notendahandbókinni eða í
hjálpartextanum eigi lengur við.