
Myndsímtali komið á
Í myndsímtali (sérþjónusta) geta bæði þú
og viðmælandi þinn séð rauntíma
hreyfimynd af hvor öðrum. Hreyfimyndin
sem myndavélin tekur birtist hjá
viðmælandanum.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-
kort og að vera innan þjónustusvæðis 3G-
símkerfis. Netþjónustuveitan þín gefur
upplýsingar um framboð, verð og áskrift
að myndsímtölum.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við
einn aðila í einu. Hægt er að koma á
myndsímtali við samhæfan farsíma eða
ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á
myndsímtölum þegar annað símtal,
myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.
Vísar
Tækinu berst ekki hreyfimynd
(annaðhvort sendir viðtakandinn
ekki hreyfimyndina eða símkerfið
sendir hana ekki).
Þú hefur hafnað
hreyfimyndasendingu úr tækinu
þínu. Til að senda kyrrmynd í
staðinn velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
.
Jafnvel þótt þú hafnir
hreyfimyndasendingu í
myndsímtali verður tekið gjald
fyrir símtalið sem myndsímtal.
Hafðu samband við
þjónustuveituna til að fá
upplýsingar um kostnað.
1 Á heimaskjánum velurðu til að
opna númeravalið og slærð inn
símanúmerið.
2 Veldu
Valkostir
>
Hringja
>
Myndsímtal
.
Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í
myndsímtali. Það getur tekið
smástund að koma á myndsímtali. Ef
ekki tekst að koma á tengingu (t.d. ef
símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft) er
spurt hvort þú viljir hringja venjulegt
símtal eða senda textaskilaboð í
staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur
séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð
úr hátalaranum. Viðmælandinn getur
hafnað myndsendingu (sýnd með )
og þá heyrir þú aðeins rödd hans og
sérð að auki kyrrmynd eða gráan
bakgrunn.
Myndsímtali slitið
Ýttu á hætta-takkann.