
Um netsímtöl
Með netsímaþjónustunni er hægt að
hringja og svara símtölum um internetið.
Netsímaþjónustur geta stutt símtöl á milli
tölva, á milli farsíma og á milli
netsímabúnaðar og venjulegs síma.
Upplýsingar um framboð og kostnað fást
hjá netsímaþjónustunni.
Til að hringja eða svara netsímtali þarftu
að vera innan sendisvæðis þráðlauss
staðarnets eða hafa opna
pakkagagnatengingu í UMTS-símkerfi og
vera tengd/ur netsímaþjónustu.
Hugsanlega er tækið með
uppsetningargræju fyrir
netsímaþjónustu.