
Raddstýrð hringing
Tækið býr sjálfkrafa til raddmerki fyrir
tengiliðina.
Hlusta á raddmerki tengiliðar
1 Veldu tengilið og
Valkostir
>
Um
raddmerki
.
2 Flettu að upplýsingum um tengilið og
veldu
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja
getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi
eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að
treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er
hátalarinn í notkun. Haltu tækinu nálægt
þér þegar þú berð fram raddmerkið.
1 Til virkja raddstýrða hringingu á
heimaskjánum skaltu ýta á og halda
inni hringitakkanum Ef samhæft
höfuðtól með höfuðtólstakka er
notað skaltu halda takkanum inni til
að hefja raddstýrða hringingu.
2 Stutt hljóðmerki heyrist og textinn
Tala nú
birtist. Berðu nafnið sem er
vistað hjá tengiliðnum skýrt fram.
3 Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir
tengiliðinn á því tungumáli sem er
valið og birtir nafnið og símanúmerið.
Hringt úr tækinu 29
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Til að hætta við raddstýrða hringingu
velurðu
Hætta
.
Ef nokkur númer eru vistuð hjá nafni er
einnig hægt að bera fram nafnið og gerð
númersins, svo sem farsími eða
heimasími.