Nokia C6 00 - Samnýting hreyfimynda

background image

Samnýting hreyfimynda

Notaðu samnýtingu hreyfimynda

(sérþjónusta) til að senda rauntíma

hreyfimynd eða myndskeið úr tækinu í

samhæft farsímatæki meðan á símtali

stendur.
Kveikt er á hátalaranum þegar samnýting

hreyfimynda er gerð virk. Ef þú vilt ekki

nota hátalarann í símtölum á meðan

hreyfimyndir eru samnýttar má einnig

nota samhæft höfuðtól.

Viðvörun:

Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur

skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á

hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu

nærri eyranu þegar kveikt er á

hátölurunum.