Nokia C6 00 - Stillingar samnýtingar

background image

Stillingar samnýtingar

Til að koma á samnýtingu hreyfimynda

þarf P2P- og 3G-tengistillingar.
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er

einnig þekkt undir heitinu SIP-tenging

(Session Initiation Protocol). SIP-

sniðstillingar verða að vera settar upp í

tækinu til að hægt sé að nota samnýtingu

hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá

þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista

þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent

þér stillingarnar eða gefið þér upp

nauðsynlegar stillingar.
Bæta SIP-vistfangi við tengilið

1 Veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

.

2 Veldu tengiliðinn eða búðu til nýjan

tengilið.

3 Veldu

Valkostir

>

Breyta

.

4 Veldu

Valkostir

>

Bæta við

upplýsingum

>

Samnýta

hreyfimynd

.

5 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu

notandanafn@vistfang (hægt er að

nota IP-tölu í stað vistfangs).

Ef þú veist ekki SIP-vistfang

viðkomandi geturðu notað

símanúmer hans, ásamt

landsnúmerinu, til að samnýta

hreyfimynd (ef netþjónustuveitan

styður það).

Setja upp 3G tenginguna þína

Hafðu samband við þjónustuveituna þína

til að fá samning um notkun 3G-símkerfis.

Gakktu úr skugga um að 3G-

aðgangsstaðastillingar tækisins séu

réttar. Nánari upplýsingar um

stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni.