Leiðaráætlun
Skipuleggðu ferðina þína og búðu til
leiðina og skoðaðu hana á kortinu áður en
þú leggur af stað.
Veldu
Valmynd
>
Kort
og
Staðsetning
.
Leið búin til
1 Bankaðu í staðsetningu
upphafspunktsins. Til að leita að
heimilisfangi eða stað skaltu velja
Leita
.
2 Smelltu á upplýsingasvæði staðarins.
3 Veldu
Leiðbeina
>
Bæta við leið
.
4 Ef þú vilt bæta við öðrum leiðarpunkti
skaltu velja
Nýr leiðarpunktur
og
viðeigandi valkost.
Breyta röð leiðarpunkta
1 Velja leiðarpunkt.
2 Veldu
Færa
.
3 Bankaðu á staðinn sem þú vilt færa
leiðarpunktinn á.
Breyta staðsetningu leiðarpunkts
Bankaðu í leiðarpunktinn og veldu
Breyta
og viðeigandi valkost.
Skoða leiðina á kortinu
Veldu
Sýna leið
.
Leiðsögn til áfangastaðar
Veldu
Sýna leið
>
Valkostir
>
Keyra af
stað
eða
Byrja að ganga
.
Stillingum fyrir leið breytt
Leiðarstillingar hafa áhrif á leiðsögn og
það hvernig leiðin er birt á kortinu.
1 Í leiðaráætlunarskjá skaltu opna
flipann Stillingar. Til að komast á
leiðaráætlunarskjáinn frá
leiðsagnarskjánum skaltu velja
Valkostir
>
Leiðarp.
eða
Leiðarpunktalisti
.
2 Stilltu ferðamátann á
Aka
eða
Ganga
. Ef þú velur
Ganga
er litið á
einstefnugötur sem venjulegar götur
og hægt er að nota göngustíga og
leiðir í gegnum til dæmis garða og
verslunarmiðstöðvar.
3 Veldu valkostinn sem þú vilt.
Veldu göngusnið
Opnaðu Stillingar-flipann, stilltu
ferðamátann á
Ganga
og veldu
Kjörleið
>
Götur
eða
Bein lína
.
Bein lína
kemur sér vel þegar ferðast er utan vegar
því að göngustefnan er þá sýnd.
Nota fljótlegri eða styttri ökuleið
Opnaðu Stillingar-flipann, stilltu
ferðamátann á
Aka
og veldu
Leiðarval
>
Fljótlegri leið
eða
Styttri leið
.
Notaðu fínstillta ökuleið
Opnaðu Stillingar-flipann, stilltu
ferðamátann á
Aka
og veldu
Leiðarval
>
Fínstillt
. Fínstillta ökuleiðin sameinar
kosti styttri og fljótlegri leiða.
Einnig er hægt að leyfa eða forðast
þjóðvegi, göng, ferjur og gjaldskylda vegi.