Nokia C6 00 - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Kortaforritið sýnir hvar þú ert staddur á

kortinu með GPS, A-GPS, þráðlausu

staðarneti eða staðsetningu byggðri á

dreifikerfi (auðkenni endurvarpa).
GPS (Global Positioning System) er

leiðsögukerfi sem byggir á móttöku

staðsetningarupplýsinga frá

gervitunglum til að reikna út staðsetningu

þína. A-GPS (Assisted GPS) er sérþjónusta

sem sendir þér GPS-gögn, sem eykur

hraða og nákvæmni staðsetningarinnar.
Staðsetning með þráðlausu staðarneti

(WLAN) eykur nákvæmni staðsetningar

þegar GPS-merki nást ekki, sérstaklega ef

þú ert innandyra eða milli hárra bygginga.
Með staðsetningu byggðri á dreifikerfi

(auðkenni endurvarpa) er staðan

ákvörðuð gegnum loftnetskerfið sem

tækið er tengt við.
Þegar þú notar kortaforritið í fyrsta skipti

er beðið um að þú tilgreinir

internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður

kortaupplýsingum, nota A-GPS eða

tengjast þráðlausu staðarneti.
Viljirðu komast hjá því að greiða fyrir

netþjónustu geturðu stillt tækið þannig

að A-GPS, þráðlaust staðarnet og

staðsetning um dreifikerfi (auðkenni

endurvarpa) verði óvirk, en þá getur tekið

mun lengri tíma en ella að reikna út

staðsetninguna. Nánari upplýsingar um

staðsetningarstillingar er að finna í

notendahandbók tækisins.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er

rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla

ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi.

Nákvæmni staðsetningargagna kann að

verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-

gervihnöttum sem gerðar eru af

Bandaríkjastjórn og kann að breytast í

samræmi við stefnu

varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um

borgaralegt GPS og alríkisáætlun um

þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á

nákvæmni. Staðsetning, byggingar,

náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða

kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði

GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki

náist ekki inni í byggingum eða

neðanjarðargöngum og þau geta orðið

fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og

málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar

staðsetningarmælingar og aldrei ætti að

treysta eingöngu á staðsetningargögn frá

GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir

staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki

fullkominn og sléttunarvillur eru

mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.

Til athugunar: Í Frakklandi er

aðeins heimilt að nota þráðlaust

staðarnet innanhúss.
Nákvæmni staðarákvörðunar getur verið

allt frá nokkrum metrum og upp í nokkra

kílómetra, allt eftir því hvaða aðferð er

notuð.