
Mail for Exchange
Með Mail for Exchange geturðu fengið
vinnupóstinn þinn sendan í tækið. Þú
getur lesið og svarað tölvupóstinum,
skoðað og breytt samhæfum viðhengjum,
séð dagbókarupplýsingar, móttekið og
svarað fundarboðum, tímasett fundi og
skoðað, sett inn og breytt upplýsingum
um tengiliði.
Mail for Exchange
Notkun á Mail for Exchange takmarkast við
samkeyrslu PIM-upplýsinga í lofti milli
Nokia-tækisins og viðurkennds Microsoft
Exchange þjóns.
Mail for Exchange er einungis hægt að
setja upp ef fyrirtæki þitt er með Microsoft
Exchange Server. Auk þess verður
kerfisstjóri fyrirtækisins að virkja Mail for
Exchange fyrir reikninginn þinn.
Áður en hafist er handa við uppsetningu á
Mail for Exchange skaltu tryggja að þú sért
með eftirfarandi:
•
Auðkenni fyrir fyrirtækistölvupóst
•
Notandanafn þitt á fyrirtækisnetinu
•
Lykilorð þitt á fyrirtækisnetinu
•
Lénsheiti netsins (hafðu samband við
tölvudeild fyrirtækisins)
•
Miðlaraheiti þitt fyrir Mail for
Exchange (hafðu samband við
tölvudeild fyrirtækisins)
Þú þarft hugsanlega að færa inn aðrar
upplýsingar til viðbótar þeim sem áður er
lýst, allt eftir uppsetningu Mail for
Exchange-miðlara fyrirtækisins. Ef þú
veist ekki réttar upplýsingar skaltu hafa
samband við tölvudeild fyrirtækisins.
42 Mail for Exchange
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Hugsanlega er nauðsynlegt að nota
læsingarkóðann með Mail for Exchange.
Sjálfgefinn læsingarkóði tækisins er
12345, en hugsanlega hefur tæknistjóri
fyrirtækisins breytt honum fyrir þig.
Þú getur opnað og breytt sniði og
stillingum Mail for Exchange í stillingum
Skilaboða.