
Myndatöku- og upptökustillingar
Ef þú vilt að skjámyndin fyrir myndatöku-
og upptökustillingar opnist áður en mynd
eða hreyfimynd er tekin skaltu velja
Valmynd
>
Forrit
>
Myndavél
og .
Skjámyndin fyrir myndatöku og
upptökustillingar er með flýtivísum til að
velja ýmsa hluti og stillingar áður en mynd
eða hreyfimynd er tekin.
Þegar myndavélinni er lokað eru
sjálfgefnar stillingar hennar valdar aftur.
Veldu úr eftirfarandi:
Velja umhverfisstillingu.
eða
Skiptu milli hreyfimynda- og
kyrrmyndastillingar.
eða Sýna eða fela myndgluggatöflu
(aðeins fyrir myndatöku).
Virkja sjálfvirka myndatöku (aðeins
myndir).
Kveikja á myndaröð (aðeins myndir).
Opnaðu
Myndir
Myndastillingar:
Velja litaáhrif.
72 Myndavél
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Til að stilla ljósgjafa. Veldu
birtuskilyrðin. Þetta gerir myndavélinni
kleift að endurskapa liti af meiri
nákvæmni.
Til að stilla leiðréttingu við myndatöku
(aðeins kyrrmyndir). Ef þú ert að taka
mynd af dökkum hlut með mjög ljósum
bakgrunni, t.d. snjó, skaltu stilla lýsinguna
á +1 eða +2 vegna birtunnar í
bakgrunninum. Stilltu á -1 eða -2 ef um er
að ræða ljósan hlut með dökkum
bakgrunni.
Til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir
kyrrmyndir). Auka skal ljósnæmi þegar
birta er lítil til að myndirnar verði ekki of
dökkar og óskýrar. Þegar ljósnæmi er
aukið kann myndsuð einnig að aukast.
Stilla birtuskil (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Til að stilla muninn á ljósustu og dekkstu
hlutum myndarinnar.
Stilla skerpu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar
eru valdar.
Myndatökustillingarnar gilda fyrir hverja
einstaka myndatöku. Ef skipt er úr einni
stöðu í aðra færast stillingarnar ekki í
tilgreint horf.
Ef ný umhverfisstilling er valin kemur hún
í stað myndatökustillinganna. Hægt er að
breyta myndatökustillingunum eftir að
umhverfi hefur verið valið, ef þörf krefur.
Það getur tekið lengri tíma að vista
myndir ef stillingum fyrir stækkun, lýsingu
eða liti er breytt.