
Skilaboð skrifuð og send
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Skilaboð eru sérþjónusta.
Skilaboð 43
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Mikilvægt: Fara skal með gát þegar
skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað eða
skaðað tölvuna eða tækið á einhvern
annan hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð
verða réttar tengistillingar að vera fyrir
hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka
stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt
er inn fer yfir þessi mörk gæti tækið
minnkað hana þannig að hægt sé að
senda hana með MMS.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta
tekið á móti og birt
margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða
getur verið breytilegt eftir
móttökutækinu.
Texta- eða margmiðlunarboð send
Veldu
Ný skilaboð
.
Hljóðskilaboð send
Veldu
Valkostir
>
Búa til skilaboð
og
viðeigandi valkost.
Viðtakendur eða hópar af
tengiliðalistanum valdir
Veldu á tækjastikunni.
Stillingar settar inn handvirkt
Smelltu á Til-reitinn.
Sláðu inn efni
margmiðlunarskilaboðanna.
Sláðu efnið inn í Efni-reitinn. Ef reiturinn
Efni er ekki sýnilegur velurðu
Valkostir
>
Skilaboðahausar
til að breyta reitunum
sem eru sýnilegir.
Skilaboð skrifuð
Smelltu á skilaboðareitinn.
Bæta efni við skilaboð
Veldu og viðeigandi efni.
Tegund skilaboða kann að breytast í
margmiðlunarskilaboð eftir því hvert
efnið er.
Skilaboðin send
Veldu
eða ýttu á hringitakkann.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir
takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri
skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
skilaboð. Þjónustuveitan tekur
hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða
valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem
hægt er að senda í einum skilaboðum.