
Stillingar margmiðlunarskilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarskilaboð
.
Veldu úr eftirfarandi:
Stærð myndar — Tilgreina skal stærð
myndar í margmiðlunarskilaboðum.
MMS-gerð — Ef þú velur
Með
viðvörunum
lætur tækið þig vita ef þú
reynir að senda skilaboð sem ekki er víst
að móttökutæki styðji. Ef þú velur
Takmörkuð
kemur tækið veg fyrir að þú
sendir óstudd skilaboð. Til að geta sett
46 Skilaboð
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

efni inn í skilaboð án tilkynninga velurðu
Laust
.
Aðgangsstaður í notkun — Veldu hvaða
aðgangsstaður er notaður sem ákjósanleg
tenging.
Móttaka margmiðlunar — Veldu
hvernig þú vilt taka á móti skilaboðum, ef
sú þjónusta er í boði. Til að taka sjálfkrafa
á móti skilaboðum í heimasímkerfinu
skaltu velja
Sjálfv. í heimakerfi
. Utan
heimasímkerfisins mun tilkynning berast
um að það séu ósótt skilaboð í
skilaboðamiðstöðinni. Ef þú velur
Alltaf
sjálfvirk
mun tækið sjálfkrafa koma á
virkri pakkagagnatengingu til að sækja
skilaboðin bæði innan og utan
heimasímkerfisins. Veldu
Handvirkt val
til að sækja margmiðlunarskilaboð alltaf
handvirkt eða
Óvirk
til að loka fyrir
móttöku margmiðlunarskilaboða. Ekki er
víst að sjálfvirk móttaka sé í boði á öllum
svæðum.
Leyfa nafnlaus skilaboð — Hafna
skilaboðum frá nafnlausum sendendum.
Fá auglýsingar — Taka á móti
auglýsingum í formi
margmiðlunarskilaboða (sérþjónusta).
Fá tilkynningar — Sýna stöðu sendra
skilaboða í notkunarskrá (sérþjónusta).
Neita sendingu tilk. — Loka fyrir að
tækið sendi skilatilkynningar fyrir
móttekin skilaboð.
Gildistími skilaboða — Veldu hve lengi
skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda
skilaboð frá þér ef fyrsta sending þeirra
mistekst (sérþjónusta). Ef ekki er hægt að
senda skilaboðin innan tímafrestsins er
skilaboðunum eytt úr
skilaboðamiðstöðinni.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir
hendi til að hægt sé að fá staðfestingu á
því hvort send skilaboð hafa verið
móttekin eða lesin. Allt eftir símkerfinu og
öðrum aðstæðum hverju sinni getur verið
að þessar upplýsingar séu ekki alltaf
áreiðanlegar.