
Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
GPS-gögn
>
Valkostir
>
Staða
gervitungla
.
Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist
stika fyrir hvert þeirra á
upplýsingaskjánum fyrir gervitungl. Því
lengri sem stikan er, þeim mun sterkara er
gervihnattamerkið. Stikan skiptir litum
þegar tækið hefur fengið nægar
upplýsingar frá gervihnattamerkinu til að
geta reiknað út staðsetningu þína.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá
a.m.k. fjórum gervitunglum til að geta
reiknað út staðsetningu þína. Þegar
frumútreikningur hefur farið fram kann
það að vera mögulegt að reikna út
staðsetningu þína með þremur
gervitunglum. Hins vegar er
útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri
gervitungl finnast.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal
athuga eftirfarandi:
•
Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná
betra merki.
•
Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
•
Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á
merkisstyrkinn.
•
Sum farartæki eru með skyggðum
rúðum og ekki er víst að
gervihnattamerki berist í gegnum
þær.
•
Gakktu úr skugga um að þú sért ekki
að byrgja loftnetið með hendinni.
62 Staðsetning (GPS)
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum
upp í nokkrar mínútur að koma á GPS-
tengingu. Það getur tekið lengri tíma að
koma á GPS-tengingu í bíl.
GPS-móttakarinn notar orku
rafhlöðunnar. Notkun hans getur tæmt
rafhlöðuna fyrr en ella.