
Um A-GPS (Assisted GPS)
Tækið styður A-GPS (Assisted GPS)
(sérþjónusta). Þegar þú kveikir á A-GPS
tekur tækið á móti
gervihnattarupplýsingum frá
hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið.
Tækið getur verið fljótara að ná GPS-
staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá
hjálpargögn með pakkagagnatengingu
og hjálpar við að reikna út hnit
staðsetningar þinnar þegar tækið tekur
við merkjum frá gervitunglum.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia
A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar A-
GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í
boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá
Nokia A-GPS þjónustumiðlaranum þegar
þörf krefur.
Það verður að vera
internetaðgangsstaður í tækinu til að
hægt sé að sækja hjálpargögn frá Nokia A-
GPS þjónustunni um
pakkagagnatengingu.
Aðgangsstaður fyrir A-GPS valinn
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
Staðarákvörðun
>
Miðlari fyrir
staðarákv.
>
Aðgangsstaður
. Aðeins er
hægt að nota internetaðgangsstað fyrir
pakkagögn í þessari þjónustu. Tækið
biður um internetaðgangsstað þegar GPS
er notað í fyrsta skipti.