Nokia C6 00 - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í

tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim

niður þegar vafrað er eða fá þær sendar

sem margmiðlunarskilaboð, sem

tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar

tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.

Hægt er að nota Nokia Application

Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp

forrit í tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Java-forrit
smáforrit
forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og

nota forrit og annan hugbúnað frá

traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian

Signed eða forrit sem hafa verið prófuð

með Java Verified™.
Fyrir uppsetningu geturðu gert

eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins,

útgáfunúmer og seljanda eða

framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða upplýsingar

.

Til að skoða upplýsingar um

öryggisvottorð forritsins skaltu velja

Upplýsingar:

>

Vottorð:

>

Skoða

upplýsingar

. Hægt er að stjórna

notkun stafrænna vottorða í

Vottorðastjórnun.

Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða

lagfæringu á forriti er aðeins hægt að

endurheimta upphaflega forritið ef

fyrir hendi er upphaflega

uppsetningarskráin eða fullkomið

afrit af hugbúnaðarpakkanum sem

var fjarlægður. Til að endurheimta

upphaflega forritið skaltu fyrst

fjarlægja forritið og setja það svo upp

aftur með því að nota upphaflegu

uppsetningarskrána eða

öryggisafritið.

Stillingar 105

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að

setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar

getur tækið beðið þig um að hlaða

henni niður. Ef enginn aðgangsstaður

er tilgreindur fyrir forritið biður tækið

þig um að velja aðgangsstað.

Forritið er sett upp á eftirfarandi hátt:
1 Til að staðsetja uppsetningarskrá

velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Forritastjórnun

. Að öðrum kosti

skaltu leita að uppsetningarskrám

með Skráarstjóra eða velja

Skilaboð

>

Innhólf

og opna skilaboð

sem innihalda uppsetningarskrá.

2 Í forritastjórnun velurðu

Valkostir

>

Setja upp

. Í öðrum forritum velurðu

uppsetningarskrána til að hefja

uppsetninguna.

Meðan á uppsetningu stendur birtir

tækið upplýsingar um stöðu

uppsetningarinnar. Ef þú setur upp

forrit án rafrænnar undirskriftar eða

vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú

skalt aðeins halda áfram að setja upp

forritið ef þú ert viss um uppruna þess

og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í

valmyndinni og velur það. Ef forritið er

ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er

það sett upp í möppunni Uppsett forrit á

aðalvalmyndinni.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa

verið settir upp eða fjarlægðir og hvenær

það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notkunarskrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins

eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri

en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif

á afkastagetu og virkni tækisins, eða

valdið því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í

minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa

verið sett upp á samhæfu minniskorti.

Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið

því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til

að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi

Suite til að taka öryggisafrit af

uppsetningarskrám og setja afritið á

samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota

Skráarstjórann til að eyða

uppsetningarskránum úr minni tækisins.

Ef .sis-skráin hefur verið send sem

viðhengi í skilaboðum skal eyða

skilaboðunum úr innhólfinu.