
Umsjón með vottorðum
Stafræn vottorð vernda efni við flutning á
trúnaðarupplýsingum. Nota ætti slík
vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru
vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna
aðgerða sem fela í sér sendingu
trúnaðarupplýsinga.
Einnig ætti að nota slík vottorð til að
minnka hættuna á vírusum eða öðrum
skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er
niður af netinu og settur upp.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Vottorðastjórnun
og veldu þá tegund
vottorðs sem þú vilt nota.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur
eru þau notuð til að staðfesta uppruna
hugbúnaðar.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða
dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo
að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er
engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn
verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist.
Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef
textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið
hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að
vottorðið ætti að vera gilt skal athuga
hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.