Nokia C6 00 - Verndað efni

background image

Verndað efni

Varið efni með stafrænni réttindatækni

(DRM), t.d. sumar efnisskrár eins og

myndir, tónlist eða myndskeið, fylgir

tengdum leyfum sem skilgreina

notkunarrétt þinn á efninu.
Þú getur skoðað upplýsingarnar og stöðu

leyfisins ásamt því að endurvirkja og

fjarlægja leyfið.
Vinna með stafræn notkunarleyfi

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Sími

>

Símastjórnun

>

Öryggisstillingar

>

Varið innihald

.

Stafræn réttindatækni (DRM)
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi

gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til

að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar

mismunandi gerðir stafrænnar tækni til

að opna stafrænt varið efni. Með þessu

tæki er hægt að fá aðgang að efni sem

verndað er með WMDRM 10, OMA DRM 1.0

og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn

hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna

efniseigendur að biðja um að geta slíks

hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er

varið með stafrænum réttindum sé

endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra

endurnýjun þess stafræns varins efnis sem

er þegar í tækinu. Afturköllun slíks

hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun

efnis sem er verndað með öðrum gerðum

stafrænna réttinda eða notkun efnis sem

ekki er verndað með stafrænum

réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum

réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir

hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal

nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia

Ovi Suite til að taka öryggisafrit af bæði

opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni

glatast það efni ásamt leyfi þess ef minni

tækisins er forsniðið. Einnig gæti leyfið og

efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast.

Glatist leyfið eða efnið getur það

takmarkað möguleikann á að nota efnið

aftur. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu

SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang

að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.