
Símtalsstillingar
Með símtalsstillingum geturðu valið
tilgreindar stillingar í tækinu þínu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
.
Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Veldu
Já
til að þeir
sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt. Ef
þú vilt nota stillingarnar sem
þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu
velja
Stillt af símkerfi
) (sérþjónusta).
Birta símanúmerið mitt — Veldu
Já
til
að þeir sem þú hringir í sjái netauðkennið
þitt.
Símtal í bið — Láttu tækið gera þér
viðvart ef hringt er í þig á meðan þú ert að
tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu
hvort sú aðgerð er virk.
Netsímtal í bið — Stilltu símann þannig
að þú fáir tilkynningu um netsímtöl sem
berast þegar þú ert að tala í símann.
Netsímtalstónn — Veldu
Kveikt
til að
láta tækið gera viðvart ef hringt er í þig á
netinu. Ef þú velur
Slökkt
færðu aðeins
tilkynningu um ósvöruð símtöl.
Hafna símtali með skilab. — Sendu
textaskilaboð þegar þú hafnar símtali og
greindu þeim sem hringdi frá því hvers
vegna þú gast ekki svarað.
Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð
textaskilaboð sem eru send þegar þú
hafnar símtali.
Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða
hafna myndsendingu á meðan
myndsímtali stendur.
Mynd í myndsímtali — Ef myndskeið er
ekki sent í myndsímtali er hægt að velja
kyrrmynd sem birtist þess í stað.
Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera
allt að tíu tilraunir til að hringja aftur í
númer sem ekki náðist samband við. Ýttu
á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka
endurvalinu.
Sýna lengd símtala — Birta lengd
símtals meðan á því stendur.
Samantekt símtals — Birta lengd
símtals eftir að því lýkur.
Hraðval — Kveikt á hraðvali.
Takkasvar — Kveikt á takkasvari.
Lína í notkun — Þessi stilling
(sérþjónusta) sést aðeins ef SIM-kortið
styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í
áskrift. Veldu hvaða símalínu á að nota til
að hringja og senda textaskilaboð. Það er
hægt að svara símtölum á báðum línum,
burtséð frá því hvor línan hefur verið valin.
Ef þú velur
Lína 2
en hefur ekki gerst
áskrifandi að þessari sérþjónustu geturðu
ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin
birtist táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Línuskipting — Til að hindra að skipt sé
á milli lína (sérþjónusta), ef SIM-kortið
Stillingar 107
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

styður það. Til að breyta þessari stillingu
þarftu að hafa PIN2-númerið.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir
eru í boði.