
Aðgerðir á snertiskjá
Notaðu fingurinn eða skjápenna (ef
tiltækur) á snertiskjáinn.
Mikilvægt: Aðeins skal nota
skjápenna sem Nokia samþykkir til
notkunar með þessu tæki. Ef annar
skjápenni er notaður getur það ógilt alla
ábyrgð á tækinu og skemmt snertiskjáinn.
Forðast skal að rispa snertiskjáinn. Aldrei
skal nota penna, blýant eða aðra
oddhvassa hluti til að skrifa á
snertiskjáinn.
Smellt og tvísmellt
Til að opna forrit eða annað atriði á
snertiskjánum er venjulega smellt á það
með fingrinum. Til að opna eftirfarandi
hluti verður hins vegar að tvísmella á þá.
•
Flokkaðu hluti í forriti, svo sem
möppuna Drög í skilaboðaforritinu.
•
Skrár á skráarlista, til dæmis mynd í
möppunni Teknar myndir í
myndaforritinu.
Ábending: Þegar þú opnar listaskjá
er fyrsti hluturinn þegar auðkenndur.
Auðkenndi hluturinn er opnaður með
því að smella einu sinni á hann.
Ef þú smellir einu sinni á skrá eða
svipaðan hlut opnast hann ekki heldur
verður hann auðkenndur. Til að sjá
tiltæka valkosti fyrir hlutinn skaltu
velja
Valkostir
eða velja tákn af
tækjastiku ef það er í boði.
Veldu
Í þessum notendaleiðbeiningum
"velurðu" forrit eða atriði með því að
smella á þau einu sinni eða tvisvar.
Dæmi: Tl að velja
Valkostir
>
Hjálp
smellirðu á
Valkostir
, og síðan
Hjálp
.
Draga
Til að draga seturðu fingurinn á skjáinn og
rennir honum yfir skjáinn.
Dæmi: Til að fletta upp eða niður á vefsíðu
dregurðu síðuna með fingrinum.
Strjúka
Til að strjúka rennirðu fingrinum hratt til
vinstri eða hægri á skjánum.
16 Tækið tekið í notkun
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Dæmi: Þegar mynd er skoðuð strýkurðu
til vinstri eða hægri til að sjá næstu mynd
eða fyrri mynd, eftir því sem við á.
Sveifla
Til að sveifla seturðu fingurinn á skjáinn,
rennir honum hratt yfir skjáinn og lyftir
honum svo skyndilega. Flett er áfram í efni
skjásins á sama hraða og í sömu átt og
áður. Til að velja hlut af flettilistanum og
stöðva hreyfinguna smellirðu á hlutinn.
Fletta
Til að fletta upp eða niður í listum með
flettistiku dregurðu til stikuna á
flettistikunni.
Á sumum listaskjám geturðu sett
fingurinn á atriði á listanum og dregið upp
eða niður.
Ábending: Til að skoða stutta lýsingu á
tákni seturðu fingurinn á táknið. Ekki eru
til lýsingar á öllum táknum.
Baklýsing snertiskjás
Ef skjárinn er ekki notaðu í tiltekinn tíma
slokknar á bakljósi hans.
Til að kveikja aftur á baklýsingu skjásins
opnarðu skjáinn og takkana og, ef það er
nauðsynlegt, og ýtir á valmyndartakkann.