
Flutningur efnis
Hægt er að nota forritið Símaflutningur til
að afrita gögn eins og símanúmer,
heimilisföng, dagbókarfærslur og myndir
úr gamla Nokia-tækinu yfir í það nýja.
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er
hægt að flytja úr því. Ef tækið styður
samstillingu er einnig hægt að samstilla
gögn milli tækja. Tækið gerir viðvart ef
hitt tækið er ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu
nema SIM-kort sé í því geturðu sett SIM-
kortið þitt í það. Þegar kveikt er á tækinu
án SIM-korts er ótengda sniðið sjálfkrafa
valið og flutningur getur farið fram.
Efni flutt í fyrsta skipti
1 Til að sækja gögn úr öðru tæki í fyrsta
sinn, úr tækinu þínu, skaltu velja
Valmynd
>
Forrit
>
Verkfæri
>
Upps. síma
>
Símaflutningur
.
2 Veldu tengigerðina sem þú vilt nota til
að flytja gögn. Bæði tækin verða að
styðja tengigerðina.
3 Ef þú hefur valið Bluetooth sem
tengiaðferð skaltu tengja tækin
saman. Veldu
Áfram
til að láta tækið
leita að tækjum með Bluetooth-
tengingu. Veldu tækið sem þú vilt
flytja efni úr. Tækið biður þig að slá
inn kóða. Sláðu inn kóða (1-16
tölustafi að lengd) og veldu
Í lagi
.
Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og
veldu
Í lagi
. Þá eru tækin pöruð.
Ekki er víst að sumar eldri útgáfur
Nokia-tækja séu með
Símaflutningsforritið. Þá er forritið
sent í hitt tækið í skilaboðum.
Símaflutningsforritið er sett upp í
hinu tækinu með því að opna
skilaboðin og fylgja leiðbeiningunum
á skjánum.
4 Í þínu tæki skaltu velja efnið sem þú
vilt flytja úr hinu tækinu.
Hægt er að hætta við flutning og ljúka
honum síðar.
Efnið er flutt úr minni hins tækisins og sett
á samsvarandi stað í tækinu þínu.
Flutningstíminn veltur á því gagnamagni
sem er afritað.