
Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í
verksmiðjunni. Ef tækið sýnir að rafhlaðan
sé að tæmast skaltu gera eftirfarandi:
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við
innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið. Þegar
rafhlaðan hleður sig er kveikt á
stöðuljósinu kringum
hleðslutækistengið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er
fullhlaðin skaltu fyrst taka
hleðslutækið úr sambandi við tækið
og síðan úr innstungunni.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í
tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á
meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er
alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar
til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða
þar til hægt er að hringja.
Ábending: Taka skal hleðslutækið úr
sambandi við rafmagnsinnstungu þegar
það er ekki í notkun. Hleðslutæki sem er í
Tækið tekið í notkun 15
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

sambandi við innstungu eyðir rafmagni
þótt það sé ekki tengt við tækið.
Tækið kann að hitna við líkt og
myndsímtöl og háhraðagagnatengingar
notkun í lengri tíma. Það er í flestum
tilvikum eðlilegt. Ef þú telur tækið ekki
vinna rétt skaltu fara með það til næsta
viðurkennda þjónustuaðila.