
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC
SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-
kort, micro-SIM-kort með millistykki eða
SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá
mynd) í þessu tæki. Micro SIM-kort er
minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki
styður ekki notkun micro SIM-korta og ef
ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það
valdið skemmdum á minniskortinu eða
tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á
kortinu geta skemmst.
Farðu nákvæmlega eftir leiðbeiningunum
til að skemma ekki bakhliðina.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja
hleðslutækið áður en rafhlaðan er
fjarlægð.
1 Opnaðu bakhliðarlokuna og taktu
bakhliðina upp.
2 Ef rafhlaðan er í tækinu er hún
fjarlægð með því að lyfta henni í
áttina sem örin vísar.
3 Settu SIM-kortið á sinn stað.
Snertiflötur kortsins þarf að snúa að
tengjum tækisins og skáhornið þarf
að vísa að efri hlið tækisins.
4 Snúðu rafhlöðunni þannig að tengi
hennar falli að tengjunum í
rafhlöðuhólfinu og komdu henni fyrir.
5 Til að setja bakhliðina aftur á tækið
skaltu beina efstu læsihökunum að
raufunum og ýta henni niður þar til
hún smellur á sinn stað.
Tækið tekið í notkun 13
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.