
Um heimaskjáinn
Á heimaskjánum geturðu opnað þau forrit
sem þú notar mest, stjórnað forritum, svo
sem tónlistarspilaranum, séð
uppáhaldstengiliðina þína og séð hvort þú
hefur misst af símtölum eða fengið ný
skilaboð.
Gagnvirkar heimaskjáseiningar
Til að opna klukkuforritið smellirðu á
klukkuna (1).
Til að opna dagbókina eða breyta sniðum
á heimaskjánum smellirðu á
dagsetninguna eða heiti sniðsins (2).
Til að skoða eða breyta tengistillingum
(
), til að sjá tiltæk þráðlaus staðarnet
ef staðarnetsleit er virk, eða sjá símtöl sem
ekki var svarað, smellirðu efst í hægra
hornið (3).
Til að opna númeravalið og hringja
velurðu (4).
Til að fela eða sýna efni strýkurðu
fingrinum yfir heimaskjáinn.
22 Tækið
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Hlutir settir á heimaskjáinn
Veldu auðan stað á heimaskjánum og
haltu honum inni, veldu síðan
Bæta við
efni
og hlutinn á skyndivalmyndinni.
Það getur falið í sér stórar
gagnasendingar að nota smáforrit
(sérþjónusta).
Hlutur færður til á heimaskjánum
Veldu
Valkostir
>
Breyta efni
og tiltekna
hlutinn og dragðu hann yfir á nýjan stað.
Hlutur fjarlægður af heimaskjánum
Veldu hlutinn sem á að fjarlægja og haltu
honum inn, og veldu síðan
Fjarlægja
á
skyndivalmyndinni.