Nokia C6 00 - Snið án tengingar

background image

Snið án tengingar

Ótengt snið gerir þér kleift að nota tækið

án þess að tengjast við farsímakerfið.

Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að

nota tækið án SIM-korts.
Virkja ótengt snið

Ýttu stutt á rofann og veldu

Án

tengingar

.

Þegar þú virkjar ótengt snið lokast

tengingin við farsímakerfið. Lokað er á

allar sendingar útvarpsmerkja til og frá

tækinu til farsímakerfisins. Ef þú reynir að

senda skilaboð um farsímakerfið er þeim

komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru

send síðar.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki

hægt að hringja, svara símtölum eða nota

aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu

við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt

að hringja í það neyðarnúmer sem er

forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst

að virkja símaaðgerðina með því að skipta

um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá

inn lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið ótengda sniðið

geturðu áfram notað þráðlaust staðarnet,

t.d. til þess að lesa tölvupóst eða vafra á

internetinu. Einnig er hægt að nota

Bluetooth-tengingu í ótengda sniðinu.

Mundu að fara að öllum viðeigandi

öryggisreglum þegar þú kemur á

þráðlausri staðarnetstengingu eða

Bluetooth-tengingu.