Þráðlausar staðarnetstengingar
Til að geta notað þráðlaust staðarnet
þarftu að búa til netaðgangsstað fyrir
þráðlaust staðarnet. Notaðu
aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem
krefjast tengingar við internetið.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á
þegar þú býrð til gagnatengingu með því
að nota netaðgangsstað. Þráðlausa
staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar
gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet
meðan á símtali stendur eða
pakkagagnatenging er virk. Aðeins er
hægt að tengjast við einn aðgangsstað
fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur
50 Tengingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
forrit geta hins vegar notað sama
aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlausa
staðarnetstengingu þrátt fyrir að tækið sé
í ótengdu sniði (ef það er í boði). Mundu
að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu.
Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem
auðkennir tækið þitt skaltu opna
númeravalið og slá inn *#62209526#.