
Um þráðlaust staðarnet
Til að geta notað þráðlaust staðarnet
verður slíkt net að vera til staðar og tækið
að vera tengt þráðlausu staðarneti. Sum
þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf
að fá aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til
að geta tengst þeim.
Til athugunar: Í Frakklandi er
aðeins heimilt að nota þráðlaust
staðarnet innanhúss.
Aðgerðir sem byggjast á þráðlausu
staðarneti eða mega keyra í bakgrunni á
meðan aðrar aðgerðir eru notaðar ganga
á rafhlöðu tækisins og draga úr endingu
hennar.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af
tiltækum dulkóðunaraðferðum til að auka
öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar.
Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á
því að einhver fái aðgang að gögnunum
þínum án heimildar.