Aðgangsst. pakkagagna
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Nettengileiðir
>
Aðgangsstaður
og fylgdu
leiðbeiningunum.
Aðgangsstað fyrir pakkagögn breytt
Veldu aðgangsstaðahóp og aðgangsstað
sem merktur er með
. Fylgdu
leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Veldu úr eftirfarandi:
Nafn aðgangsstaðar — Þjónustuveitan
leggur fram nafn aðgangsstaðarins.
Notandanafn — Notandanafn getur
verið nauðsynlegt til að koma á
gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni.
Biðja um lykilorð — Ef þú þarft að slá inn
lykilorðið í hvert skipti sem þú tengist við
miðlara eða ef þú vilt ekki vista lykilorðið
í tækinu skaltu velja
Já
.
Lykilorð — Það getur verið nauðsynlegt
að nota lykilorð til að koma á
gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni.
Sannvottun — Til að senda
aðgangsorðið alltaf dulkóðað skaltu velja
Örugg
. Til að senda lykilorðið dulkóðað
þegar það er hægt skaltu velja
Venjuleg
.
Heimasíða — Sláðu inn veffangið eða
númer skilaboðamiðstöðvar
margmiðlunarskilaboða, eftir því hvaða
aðgangsstað þú vilt setja upp.
Nota aðgangsstað — Stilltu tækið
þannig að það komi á tengingu með
þessum aðgangsstað, annaðhvort
sjálfvirkt eða eftir staðfestingu.
Breyta frekari aðgangsst. pakkagagna
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
.
Veldu úr eftirfarandi:
Gerð símkerfis — Veldu hvaða
internetsamskiptareglur á að nota þegar
gögn eru flutt úr eða í tækið. Aðrar
stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi
þú velur.
IP-tala símans (aðeins fyrir IPv4) — Sláðu
inn IP-tölu tækisins þíns.
Nafnaþjónustur — Sláðu inn IP-tölu
aðal- og aukanafnamiðlara ef
þjónustuveitan biður um það. Hafðu
samband við internetþjónustuveituna til
að fá þessar tölur.
Slóð staðgengilsmiðlara — Sláðu inn
veffang proxy-miðlarans.
Númer staðgengilsgáttar — Slá inn
gáttartölu proxy-miðlarans.