
Um Bluetooth-tengingar
Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á
þráðlausri tengingu við önnur samhæf
tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og
bílbúnað.
Þú getur notað tenginguna til að senda
hluti frá tækinu þínu, flytja skrár frá
samhæfri pc-tölvu, og prenta skrárnar
með samhæfðum prentara.
Veldu og
Valmynd
>
StillingarTengingar
>
Bluetooth
.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota
útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin
ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við
annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan
við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá
öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna hindrana eins og
veggja eða annarra raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth
Specification 2.0 + EDR sem styður
eftirfarandi snið: Dial-Up Networking
(DUN), Object Push Profile (OPP), File
Transfer Profile (FTP), Hands Free Profile
(HFP), Headset Profile (HSP), Basic Imaging
Profile (BIP), Remote SIM Access Profile
(SimAP), Device Identification Profile (DI),
Phonebook Access Profile (PBAP), Human
Interface Device Profile (HID), Generic
Audio/Video Distribution Profile (GAVDP),
Audio/Video Remote Control Profile
(AVRCP), Advanced Audio Distribution
Profile (A2DP). Til að tryggja samvirkni
milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-
tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund.
Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við
þetta tæki.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að
tengja það við leyfð tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga
á rafhlöðu símans og draga úr endingu
hennar.