
Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar
(sérþjónusta), t.d. GPRS í GSM-símkerfi.
Þegar tækið er notað í GSM- og 3G-
símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og
aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu.
Í 3G-símkerfinu er ekki slökkt á
gagnatengingu þegar símtal er í gangi.
Einnig er hægt að koma á gagnatengingu
við þráðlaus staðarnet. Aðeins er hægt að
tengjast við einn aðgangsstað fyrir
þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur
forrit geta hins vegar notað sama
aðgangsstaðinn.
Til að koma á gagnatengingu verður
aðgangsstaður að hafa verið valinn. Hægt
er að tilgreina mismunandi gerðir
aðgangsstaða, líkt og:
•
MMS-aðgangsstað til að senda og taka
við margmiðlunarskilaboðum,
•
Internetaðgangsstað (IAP) til að
senda og taka við tölvupósti og
tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð
aðgangsstaðar þarf að nota fyrir tiltekna
þjónustu fást hjá þjónustuveitu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.