
Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið og
allan aukabúnað. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að
halda tækinu í ábyrgð.
•
Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns
vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar.
112 Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því
að þorna.
•
Ekki skal geyma tækið á köldum stað.
•
Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í
notendahandbókinni.
•
Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
•
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það.
•
Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að
hreinsa yfirborð tækisins.
•
Af og til skal slökkva skal á tækinu og fjarlægja
rafhlöðuna til að það virki sem best.
•
Haltu tækinu frá seglum eða segulsviðum.
•
Til að tryggja öryggi mikilvægra gagna skal vista þau á
minnst tveimur stöðum, svo sem í tækinu, á
minniskorti eða tölvu, eða skrifa niður mikilvægar
upplýsingar.
Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað. Það er í flestum
tilvikum eðlilegt. Ef grunur leikur á að tæki vinni ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.