
Neyðarsímtöl
Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus
staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið
styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á
farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði að koma á
neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu
netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu
við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á
þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti,
t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1
Ef slökkt er á tækinu skaltu kveikja á því. Athugaðu
hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir
einnig þurft að gera eftirfarandi atriði, allt eftir tækinu
þínu:
•
Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
•
Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur gert
virkar í tækinu þínu.
•
Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar í virkt
snið.
•
Ef skjárinn og takkarnir eru læstir skaltu renna til
lásnum á hlið tækisins til að opna þá.
2
Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa
skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3
Opnaðu númeraval með því að velja viðkomandi tákn
(
).
4
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi
svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
5
Ýttu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið
þitt kann að vera eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.